Fréttir úr Ferjubakka
Hér setjum við inn allt það sem telst fréttnæmt úr Ferjubakkanum. Vinsamlegast athugið að hér er um opið svæði að ræða og því getum við ekki birt allt sem okkur sýnist. Endilega sendið okkur línu ef þið hafið eitthvað efni eða tilkynningar sem gætu átt heima hér.
Tiltektardagur Ferjubakka verður sunnudaginn 14. maí klukkan 10 til 14 ef veður leyfir.
Þau sem hafa kost á að taka þátt og eyða með okkur klukkutíma eða svo í að taka til í kringum húsið okkar mæta út í garð með góða skapið og vinnuhanskana.
Ef þið hafið einhverra hluta vegna ekki kost á að taka þátt í tiltektardeginum gefst kostur á að leggja klukkutíma vinnu fram síðar eða leggja tiltektargjaldið, sem er 15.000 krónur, inn á reikning húsfélagsins.
Öryrkjar og eldri borgarar eru eindregið hvattir til þátttöku. Tiltektardagurinn snýst um miklu meira en einfalda tiltekt og það er alltaf gott að hafa góða verkstjóra á staðnum.
Engin ummæli enn

